"The man who has no imagination has no wings" ----- Muhammad Ali




NÝTT MÓTTÓ FYRIR VIKUNA


BANNAÐ


ÞETTA SVAR ER ÉG ALLTAF AÐ FÁ



ÞETTA VISSI ÉG EKKI

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

LATUR


7



BARA VITLEYSINGAR

Númi kallinn
Dröfn hans Ómars
Ísaksen systur
Íris Edda
Kolla Ýr
Lára Hrund í USA
Biggi bloger
Einar geðveiki
Biggi Sjúki
Bragi Bró
Davíð danski
Vaka ekki kannski lengur :D
vitlausu sundstelpurnar
Stjörnugaurar í handbolta
Stelpurnar í Stjörnunni að tjá sig
RULLUF!!!!
Birkir Tvíburi
Elli Blö


AÐRIR TENGLAR SEM ÉG KÍKI Á
Sundliðið hjá Brian og davíð
mogginn
Sportið




SNILLDAR SÖGUR
Tucker Max
Psycho bitch from hell





online

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed
Sunday, January 08, 2006
EKKERT

Jæja orðið svolítið langt síðan að maður bloggaði eitthvað þannig að maður ætti kannski að henda einhverju inn. Er kominn upp á Laugarvatn aftur eftir leikinn í dag sem við unnum með 6 frekar leiðinlegur leikur. En já maður þarf víst að vakna klukkan 4 í nótt til að skutla skoska fólkinu út á flugvöll það verður frábært. En segi meira frá vikunni og einhverjar pælingar á morgun nenni NÚLL núna

Posted at 12:08 am by Wilderinn
Comments (2)  

Tuesday, January 03, 2006
Íþróttamaður ársins vs Skaupið

Jæja sæl og blessuð, tvær færslur í röð dag eftir dag það er eitthvað nýtt hjá mér. En allavegana var að horfa á Íþróttamann ársins og ég er ekki frá því að þetta hafi verið fyndnara en SKAUPIÐ á laugardaginn.

Í fyrsta lagi er ég ekki sammála þessu, eins frábær íþróttamaður og Eiður Smári er þá verð ég að segja að Guðjón Valur átti þetta frekar skilið, afhverju spyrja margir kannski en þá skulum við bara skoða aðeins árangurinn, Eiður enskur meistari, deildarbikarmeistari og og góður árangur með Íslandi, vissulega skoraði hann eitthvað og stendur sig alltaf þegar verið er að kaupa nýja menn. Guðjón Valur varð evrópumeistari, valinn í úrvalslið í þýskalandi, skiptir um lið og er markahæstur í þýskalandi eins og er. Stendur sig næstum alltaf eins og hetja með landsliðinu, talinn einn besti handboltamaður í heimi núna.

Ég bara sé það ekki að Eiður hafi gert neitt stórkostlegt núna seinni part árs, fær lítið að spila á meðan Guðjón spilar hvern einasta leik með 8,19 mörk að meðaltali í leik. En það má alveg segja það að Eiður sýndi skemmtilega tilburði þarna upp á sviði með húmor sínum og er hægt að segja að hann hafi bara slegið skaupið alveg út með vel heppnuðum bröndurum.

En allavegana nenni ekki að tjá mig meira þetta hefur tekið á enda ekki kominn í form ennþá

Gummi út

Posted at 09:32 pm by Wilderinn
Comments (4)  

Monday, January 02, 2006
Nýtt ár nýr dagur nýtt blogg

Já þið segið það. Komið nýtt ár og er hægt að segja að margt gekk á þessu blessaða 2005 ári. Veit í raun ekki hvar ég á að byrja en held svona að helst ber að nefna að ég ákvað að koma mér frá þessum frábæra stað sem Ísafjörður er og skellti ég mér bara á Laugarvatn í skóla, já það er bara rétt, Kallinn mættur í skóla aftur. Þetta hefur bara gengið helvíti vel verð ég að segja enda fínar einkunnir komnar í hús núna þegar þetta er skrifað.

Svo er maður náttúrulega kominn á fullt aftur inn í handboltann og eru bæði KK og KVK liðin að standa sig vel enda kominn alvöru þulur aftur í bæinn hahahaha
En já maður hefur annars bara verið að vinna í þessum skóla sem maður er í og ég verð bara að segja að þetta er án efa besta ákvörðun sem ég hef tekið held ég, það er að fara í KHÍ

En jæja nýtt ár að komast af stað og þá er náttúrulega alltaf klassísk spurning, eru einhver áramótaheit í gangi. Ég veit ekki alveg hvað skal segja eða hvort heit skal kalla en það er á hreinu að það verður ekki meira en 5 djömm á þessari skóla önn hjá mér ef að þau verða 5 það er að segja. Planið er nefnilega að komast aftur í almennilegt form og losa sig við þessa frábæru bumbu sem maður var/er kominn með. Markmiðið er að synda núna 4 sinnum í viku og komast í sundform þannig að maður geti nú mætt á Meistaramót Íslands og það er ekki sagt í beinni útsendingu að maður sé ekki í formi. Það þarf að sýna þessu liði "Kjartani" að ég get enn unnið það í sundi :D :D

Síðan er Dóri félagi úr skólanum búinn að segjast vera tilbúinn til að kenna mér nú þessi grunngrip á gítar þannig að maður verði mellufær eins og það er kallað. Hef alltaf langað til þess að læra þetta og nú er tíminn. Ég ætti kannski að hafa inn í þessu að ég ætli að standa mig í skólanum en það þarf nú ekki ég mun gera það pottþétt :D

Jæja hef nú eiginlega ekki meira að segja í bili, nenni ekki beint að vera með einhverjar pælingar svona til að byrja með en það kemur að því og hver veit nema að maður fari að taka upp á því að segja frægðarsögur af slysunum mínum og sjúkrabílum

Gummi út

Posted at 09:04 pm by Wilderinn
Comments (2)  

Tuesday, October 11, 2005
Er að spá

Já þið segið það, fólk er eitthvað að tala um það að ég sé lélegur að blogga og það er bara spurning hvort ég nenni því eitthvað lengur. Það er eiginlega of mikið að gera hjá mér og ég bara eiginlega finn mér aldrei tíma til þess að gera þetta því maður er eitthvað svo þreyttur á kvöldin eftir daginn og svo hlaðast upp sögurnar og þá er of mikið til að segja frá.

Það var á miðvikudaginn síðasta þá var kvennaferð hér í skólanum og var það þannig að stelpurnar fóru einhvert með rútu og var hörkudagskrá hjá þeim þar sem þær fóru meðal annars í kynlífstækjakynningu og viti menn þær eyddu yfir 150.000 krónum í tæki og fengum við að vita það að það var höfrungurinn sem var vinsælastur. Þegar þær komu svo aftur þá tókum við strákarnir á móti þeim og vorum við með 4 herbergi tilbúin handa þeim á hvorri hæð. Þetta voru semsagt skotherbergi, klámherbergi, nuddherbergi og trúnóherbergi. Veit ekki betur en að þær voru yfir sig hrifnar af þessu.

Mikið var um drykkju þetta kvöld en bar þar hæst drengur sem heitir Árni og fór hann á kostum þetta kvöld. Hann var semsagt að til klukkan 8 um morguninn og var hann fram á gangi með gítarinn á fullu alveg að tapa sér og þurftu aðrir nemendur að vísa honum inn í herbergi vegna þess að kennarar voru að mæta í skólann. Þetta var bara fyndið og hlægja menn að þessu núna.

En jæja svo kom helgin og var mikið um handbolta leiki þar sem 2 leikir af 4 unnust en því miður voru það minna mikilvægir leikir sem unnust. Stelpurnar byrjuðu á því að vinna fyrri leikinn í evrópukeppninni með 5 mörkum svo unnu Stjarnan 2 sinn leik í bikarkeppninni en strax eftir hann þá töpuðu Stjarnan kk fyrir Víking/Fjölni sem er náttúrulega bara skammarlegt og má það bara alls ekki. Að lokum töpuðu stelpurnar seinnileiknum í evrópukeppninni með 6 mörkum og því úr leik en það er svona það koma leikir eftir þessa.

Jæja eins og staðan er þá hreinlega nenni ég þessu ekki lengur og held bara að ég fari að hætta þessu, bloggheimurinn mun sennilega ekkert sakna mín þannig að þetta er bara í góðu lagi.

Wilderinn ÚT.......

Posted at 10:40 am by Wilderinn
Comments (3)  

Friday, September 23, 2005
Klukkkkkk

Jæja þá hef ég verið klukkaður, þið sem vitið ekki hvað það er þá er það þannig að ef þið eruð klukkuð þá verðið þið að segja frá einhverjum 5 atriðum sem fáir vita, en það voru Ragnheiður og Kannski sem klukkuðu mig þannig að hér kemur það.

1. Það er búið að keyra á mig persónulega 3 sinnum og svo hef ég 2 sinnum lennt í árekstri á bíl en í öll skiptin sloppið við meiðsli.

2. Ég er hrakfallabálkur eins og allir vita en ég hef aðeins einu sinni brotið bein og það var þegar ég sló í öxlina á félaga mínum ég fékk svo kallað boxara brot á hendi.

3. ég féll bæði í íslensku og stærðfræði á samræmdu prófunum

4. ég hef ekki enn greinst með kynsjúkdóm en var stressaður einusinni í eina viku því ég hélt að ég væri kominn með HIV en sem betur fer slapp ég alveg.

5. þrátt fyrir skoðanir annara þá er ég alveg fínn gaur


Ég klukka hér með Núma, Einar Odd, Önju og Ómar Snævar og Dröfn



Annars er bara gott að frétta þannig séð, var í brúðkaupi hjá Ástu frænku og Þorleifi síðustu helgi og þegar ég vaknaði á Sunnudag þá hafði ég misst röddina og viti menn hún er ekki enn kominn almennilega til baka enda þufti ég að þulast á stjörnuleik á miðvikudag og nú er hún að koma aftur og þá er leikur á morgun aftur!!!

Jæja Fjarstýringin kveður

Posted at 07:26 pm by Wilderinn
Comments (3)  

Wednesday, September 07, 2005
sorgardagur

Við steinlágum fyrir 2.árinu í fótboltanum í dag þannig að ég nenni ekki að skrifa mikið en þetta var alveg skelfilegur leikur af okkar hálfu en á móti kemur að okkur vantaði 3 sterka leikmenn en það þýðir ekkert að GRENJA það svona er bara lífið í dag

Posted at 07:47 pm by Wilderinn
Comments (2)  

Tuesday, September 06, 2005
Nýr dagur nýr leikur

Jæja það er þriðjudagur í dag og skólinn gengur bara vel að venju. Ég segi það enn að þetta er án efa skemmtilegasti skóli sem ég hef farið í. Hresst lið sem er með mér hérna og ekki skaðar að hér er mikil hreyfing líka en það er nú aðallega á fyrsta árinu.

Nú er 2.árið búið að bjóða í okkur á fyrsta ári í fótboltaleik á morgun og er ég staðráðinn í því að láta það ekki endurtaka sig að tapa leik á móti þessum drengjum. Við vorum óheppnir í síðustu viku en nú gerðu þeir taktísk mistök og buðu í okkur því þeir héldu að við yrðum í fullri hreyfingu á morgun það er 2 tíma í frjálsum og svo 2 tíma í fótbolta en það er bara frjálsar þannig að menn koma vel hvíldir í leikinn og fullir af ákafa.

Það er búið að stilla upp liðinu og lítur út fyrir að ég verði framarlega á miðjunni að stjórna spilinu en ég mun nú jafnvel fá að spreyta mig í framlínunni líka og þá er alltaf hætta á ferð hehe. Svo er þjálffræðin að byrja á fimmtudag sem ég hlakka mikið til en það sem klikkaði var að nú erum við í dansi á föstudögum þannig að léttir föstudagar eru útúr myndinni. Svo má nú ekki gleyma að á föstudag þá mætir kennó úr bænum hingað uppeftir og verður tekið eitthvað djamm hérna með þeim. Eitthvað ball í úthlíð og læti. En allavega ég er farinn að elda mér mat (skyndi núðlur)

Posted at 07:16 pm by Wilderinn
hefur þú eitthvað að segja  

Next Page